Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 30

Bílar 3 Sýndu hvað í þér býr Þótt Leiftur-McQueen sé ekki dauður úr öllum rafgeymum þá eru komnir fram nýir bílar sem eru betri en hann í kappakstri og komast hraðar. Við það á rauða hetjan erfitt með að sætta sig og ákveður að taka þátt í enn einum kappakstrinum til að sýna að hann sé enn sá besti. En er hann það í raun og veru? Teiknimyndirnar tvær sem gerðar hafa verið um hina talandi bíla hafa notið ómældra vinsælda á undanförnum árum, eða allt frá því að sú fyrri var frumsýnd árið 2006. Nú bætist þriðja myndin við í seríuna, en hún gerist nokkrum árum eftir atburðina í síðustu mynd. Fyrir utan Leiftur-McQueen endurnýjum við hér kynnin af mörgum karakterum fyrri myndanna um leið og við kynnumst nokkrum nýj- um, þar á meðal kraftmiklum keppinautum McQueens um titlana! Punktar .................................................... HHHH - N. Y. Times HHHH - L. A. Times HHHH - IndieWire Segja má að sagan í þessari þriðju mynd um bílana sé nokkurs konar spegill af fyrstu myndinni að því leyti að núna er það Leiftur- McQueen sem er farinn að eldast og því tekinn við stöðunni sem hinn gamli Kóngur var í þar og þarf nú að verjast áskorun hins unga Jacksons storms sem er þá í sömu stöðu og McQueen var þá. l Þar sem myndin er sú þriðja í röðinni eru myndirnar um bílana orðnar önnur teiknimyndaserían frá Pixar sem inniheldur þrjár myndir, en sú eina hingað til var Toy Story-serían. l Bílar 3 Teiknimynd VOD Íslensk talsetning: Atli Rafn Sigurðarson, Bryndís Ásmundsdóttir, Arnar Jónsson, Orri Huginn Ágústsson, Þórhallur Sigurðsson, Þór Tulinius, Sigurður Þór Óskarsson, Bergur Þór Ingólfsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Hanna María Karlsdóttir og margir fleiri Þýðing: Harald G. Haralds Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Útgefandi: Síminn & Vodafone 80 mín 14. desember 30 Myndir mánaðarins