Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 28

The Big Sick Vandamálin eru til að leysa þau Uppistandarinn Kumail er Bandaríkjamaður af pakistönskum ættum og hefur um langt skeið þurft að hafna aragrúa kvon- fanga sem foreldrar hans hafa fundið handa honum. En um leið og hann vill ráða ástalífi sínu algjörlega sjálfur vill hann hins vegar ekki styggja trúaða foreldrana og frændgarðinn ef þess er nokkur kostur. Þegar hann hittir Emily reynir á þetta. The Big Sick er rómantísk kómedía eins og þær gerast bestar enda hefur myndin hlotið afar góða dóma og notið mikilla vinsælda alls staðar þar sem hún hefur komið út. Rómantíkin svífur hér yfir vötnunum en um leið þurfa allir sem við sögu koma, bæði þau Kumail, Emily og fjölskyldur þeirra, að takast á við rótgróna for- dóma, bæði sína eigin og annarra, sem skora þau bæði siðferðis- og menningarlega á hólm. Þetta er mynd sem allir aðdáendur góðra rómantískra gamanmynda munu skemmta sér vel yfir. The Big Sick Það kviknar fljótlega neisti á milli þeirra Kumails og Emily þegar þau hittast fyrst, en áður en samband þeirra getur orðið alvarlegra þurfa þau bæði, sérstaklega Kumail, að ryðja nokkrum ljónum úr veginum. Rómantísk kómedía DVD VOD 115 mín Aðalhlutverk: Kumail Nanjiani, Zoe Kazan, Holly Hunter, Ray Romano, Anupam Kher, Zenobia Shroff og Adeel Akhtar Leikstjórn: Michael Showalter Útgefandi: Myndform 14. desember Punktar .................................................... HHHHH - Chicago Sun-Times HHHHH - New York Times HHHHH - Washington Post HHHHH - Time Out New York HHHH 1/2 - Variety HHHH 1/2 - ReelViews HHHH - Empire HHHH - Rolling Stone HHHH - Screen HHHH - Time Eins og sést á stjörnugjöfinni hér fyrir ofan hefur The Big Sick fengið frábæra dóma gagnrýnenda en hún er með 8,6 í meðal- einkunn á Metacritic og 8,2 í meðaleinkunn á Rotten Tomatoes. l Sagan í myndinni er að hluta til byggð á sannri sögu aðalleikarans, Kumails Nanjiani, en hann er einnig einn af framleiðendum mynd- arinnar og skrifaði auk þess handritið ásamt Emily V. Gordon. l Þau Holly Hunter og Ray Romano leika foreldra Emily og þykja eins og aðrir leikarar í myndinni fara á kostum í skemmtilegum hlutverkum. Veistu svarið? Enginn vafi er á að The Big Sick er stærsti smellur Kumails Nanjiani til þessa en fyrir gerð myndarinnar var hann hvað þekktastur fyrir að leika persónuna Dinesh Chugtai í vinsælum sjónvarpsþáttum sem m.a. hafa veri ð sýndir á Stöð 2. Hvaða þáttum? Helstu aðstandendur þessarar frábæru gamanmyndar, f.v.: Judd Apatow og Barry Mendel, framleiðendur, Ray Romano, Holly Hunter, Zoe Kazan, Emily V. Gordon, sem skrifaði handritið ásamt Kumail Nanjiani, Kumail Nanjiani og leikstjórinn Michael Showalter. Silicon Valley. 28 Myndir mánaðarins