Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 27

Gearheads – Hrói höttur Gearheads Láttu drauminn rætast Bobby Dunlap er ungur maður sem syrgir föður sinn, en sá var mikil kapp- aksturshetja. Sjálfan dreymir Bobby um að taka þátt í helsta kappakstrinum í heimabæ sínum en skortir bæði bíl og þjálfun. En þá fær hann óvænta hjálp. Hér er á ferðinni mynd eftir John O. Hartman sem gerist í bænum Smalltown í Bandaríkjunum þar sem vinsæll og vel sóttur kappakstur er haldinn árlega og laðar að sér keppendur víða að. Bobby Dunlap er sonur manns sem hafði oftar en einu sinni sigrað í þessum kappakstri áður en hann féll frá. Síðan þá hefur Bobby átt í erfiðleikum með að finna fótfestu í lífinu enda sér hann ekki hvernig draumur hans sjálfs um að feta í fótspor föður síns geti ræst. En þá kynnist hann dularfullum manni sem ákveður að hjálpa honum umfram það sem nokkur hefði getað átt von á, síst af öllu Bobby sjálfur ... VOD 82 mín Aðalhlutverk: Massimo Lista, Stuart Stone og Emily Peachey Leikstjórn: Terry Ingram Útg.: Myndform Hasar / Drama 8. desember Hinn ungi Bobby Dunlap fær óvænta aðstoð til að feta í fótspor föður síns. Hrói höttur – 7. hluti Sjö nýjar teiknimyndir um Hróa hött og félaga Skemmtilegir enskir tölvuteiknaðir þættir um hinn bogfima Hróa hött og félaga hans í Skírisskógi sem berjast í þágu þeirra sem minna mega sín gegn ofríki Jóhanns konungs og hvers konar spillingu og harðstjórn hans. Sögurnar um alþýðuhetjuna Hróa hött og alla góðu félagana hans í Skírisskógi hafa hér fengið hressilega andlitslyftingu í bráðskemmtilegum teiknimyndum þar sem hvert ævintýrið rekur annað. Hér er um að ræða sjöunda hlutann í seríunni, sjö þætti (nr. 46 til 52) sem koma út á VOD-leigunum, en fyrri hlutarnir ættu einnig enn að vera fáanlegir. Skelltu þér með í baráttuna ásamt Tóka munki, Litla-Jóni og Maríu og öllum hinum bandamönnum Hróa hattar sem berjast fyrir þá sem minna mega sín! VOD 100 mín Teiknimyndir með íslensku tali um Hróa hött og félaga Útgefandi: Myndform Barnaefni 8. desember Myndir mánaðarins 27