Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 26

Christmas on the Bayou Óskir geta stundum ræst
The Christmas Switch Skipt um líkama
Christmas on the Bayou – The Christmas Switch
Christmas on the Bayou Óskir geta stundum ræst
Katherine er framkvæmdastjóri í New York sem ákveður að fara ásamt ungum syni sínum á æskuslóðirnar í Louisiana og eyða jólunum með móður sinni . En heimsókn hennar á eftir að ýfa upp nokkur fortíðarmál .
Christmas on the Bayou er rómantísk gamanmynd sem fengið hefur mjög góða dóma . Eftir að Katherine kemur til heimabæjarins líður ekki langur tími þar til hún rekst á gamlan kunningja , lögreglumanninn Caleb , sem var alltaf skotinn í henni og er það enn . Á sama tíma kynnist sonur hennar hinum aldna Noel ( Ed Asner ) sem segist vera sjálfur jólasveinninn – og getur kannski látið óskir hans rætast !
Punktar ............................................................................................ l Það kannast áreiðanlega margir við þau Hilarie Burton og Tyler Hilton sem leika tvö stærstu hlutverkin í Christmas on the Bayou , en þau léku saman í One Tree Hill-sjónvarpsþáttunum sem nutu mikilla vinsælda á árunum frá 2003 til 2012 .
VOD
Aðalhlutv .: Hilarie Burton , Tyler Hilton , Randy Travis og Markie Post Leikstj .: Leslie Hope Útg .: Sena
Jólamynd
86 mín
7 . desember
Tónlistarmaðurinn og kántrísöngvarinn Randy Travis leikur stórt hlutverk í myndinni .
The Christmas Switch Skipt um líkama
Sam Wells er gamall maður sem þráir að vera jólasveinn eitt árið til áður en líkami hans deyr . Hann ákveður að biðja smákrimmann Eddie um aðstoð gegn milljón dollara greiðslu og Eddie ákveður að slá til þrátt fyrir áhættuna .
The Christmas Switch er gamansamt jólaævintýri með töfrum , enda reynist hinn gamli Sam göldróttur með afbrigðum . Hann verður mjög glaður þegar hann fær afnot af líkama Eddies sem að sama skapi þarf að bíða á meðan í líkama Sams og uppgötva hvernig það er að vera gamall . Um leið kynnist hann dóttur Sams , hinni fögru og umhyggjusömu Susan , og er áður en varir orðinn ástfanginn upp fyrir haus . En þegar komið er að því að skipta aftur um líkama kemur babb í bátinn .
Punktar ............................................................................................ l The Christmas Switch byggir á gamalkunnu stefi úr ævintýraskáldskap og er um leið sögð tilbrigði við söguna í hinni frægu jólamynd Miracle on 34th Street .
VOD
Aðalhlutverk : Natasha Henstridge , Brian Krause og Cedric Smith Leikstjórn : Paul Lynch Útgefandi : Sena
Jólamynd
97 mín
7 . desember
Þegar þeir Sam og Eddie hafa skipti á líkama fer í gang mjög sérstök atburðarás .
26 Myndir mánaðarins