Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 24

Emoji-myndin Uppgötvaðu hver þú ert Gene býr ásamt aragrúa broskarla og alls kyns öðrum táknum í borg emoji-táknanna sem er falin á milli appanna í símanum. Táknin í borginni þrá að vera valin af eiganda símans og Gene er þar engin undantekning. Hann er svokallað „meh“-tákn og á að vera með tómlátan svip. Gene hefur þó litla sem enga stjórn á svipbrigðum sínum og hin táknin í borginni eru hrædd um að síminn verði straujaður komist eigandinn að þessu vandamáli. Gémmi Fimm og Töggur ganga til liðs við Gene og ferðast um símann þveran og endilangan í leit að kóðanum sem á að gera Gene að „eðlilegu“ emoji-tákni með einn fastan svip. Emoji-myndin er nýjasta myndin frá teiknimyndadeild Sony-kvik- myndarisans og hefur að geyma litríkt, fjörugt og fyndið ævintýri sem öll fjölskyldan getur skemmt sér vel yfir. Emoji-myndin Teiknimynd DVD VOD 94 mín Íslensk talsetning: Ævar Þór Benediktsson, Orri Huginn Ágústsson, Salka Sól Eyfeld Hjálmarsdóttir, Esther Talia Casey, Edda Björgvins- dóttir, Steinn Ármann Magnússon, Hafsteinn Níelsson, Guðmundur Ólafsson, Matthías Davíð Matthíasson og fleiri Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Upptökur: Stúdíó Sýrland Útgefandi: Sena 7. desember 24 Myndir mánaðarins