Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 21

Christmas Lodge – Christmas Miracle Christmas Lodge Sumar minningar lifa að eilífu Þegar Mary Tobin er í fjallaferð með unnusta sínum ganga þau fram á bjálkahús sem vekur upp ótal minningar í huga Mary því í þessu húsi hafði fjölskylda hennar oft safnast saman fyrr á árum, ekki síst í kringum jólin. Þegar Mary fer að rannsaka málið sér hún sér til sárrar mæðu að bjálkahúsinu hefur ekki verið haldið vel við. Um leið uppgötvar hún að eigandi þess er jafnaldri hennar, Jack Rand, en þau hafa ekki hist síðan í æsku þegar fjölskyldur þeirra voru nágrannar. Jack er áhugasamur um að gera húsið upp en skortir fé til þess og svo fer að Mary ákveður að hjálpa honum við uppbygginguna sem hún af sérstökum ástæðum vonar að verði lokið áður en næstu jól ganga í garð ... Punktar ............................................................................................ Christmas Lodge er kanadísk mynd og er hún að öllu leyti tekin upp í og við bæinn Langley í Bresku Kólumbíu í suðvesturhluta Kanada. l VOD 86 mín Aðalhlutv.: Erin Karpluk, Michael Shanks og Rukiya Bernard Leikstjórn: Terry Ingram Útgefandi: Sena Jólamynd 1. desember Christmas Lodge er rómantísk mynd um kristni, kærleik og tilgang jólanna. Christmas Miracle Trúin getur vísað þér leið Þegar brestur á með óveðri og gríðarlegri snjókomu neyðast átta manns sem þekkjast ekkert innbyrðis til að leita skjóls í gamalli kirkju. Staðan er slæm því jólin eru að koma og því vilja þau öll komast heim sem allra fyrst. Það er stundum sagt að þegar einar dyr lokast opnist aðrar og má segja að það sé útgangspunkturinn í þessari sögu. Einstaklingarnir átta sem lokast inni í kirkjunni hafa auðvitað ekkert við að vera nema ræða málin sín á milli og í ljós kemur að þótt þau sýnist í fyrstu vera ólík innbyrðis er meira sem sameinar þau en sundrar. Svo fer að dvölin í kirkjunni á eftir að leiða ýmislegt óvænt í ljós í fari þeirra allra og um leið gerist dálítið kraftaverk sem á eftir að efla trú þeirra á hið góða. Punktar ............................................................................................ Þessi mynd er gerð af sama leikstjóra og framleidd af sömu aðilum og gera myndina hér fyrir ofan og eins og hún er þetta fyrst og fremst kristileg jólamynd. l VOD 92 mín Aðalhlutv.: Allison Hossack, Aaron Pearl, Dan Payne og Valin Shinyei Leikstjórn: Terry Ingram Útg.: Sena Jólamynd 7. desember Óveður og mikil snjókoma verða til þess að átta manns lokast inni í gamalli kirkju. Myndir mánaðarins 21