Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 20

Holiday Road Trip – A Christmas in Vermont Holiday Road Trip Leitaðu ekki langt yfir skammt Þau Patrick og Maya eru starfsmenn fyrirtækis sem framleiðir gæludýra- vörur og kemur ekkert allt of vel saman, enda ólík að upplagi. Þegar eig- andi fyrirtækisins sendir þau saman í kynningarferð fyrir jólin breytist allt. Það er fátt notalegra í aðdraganda jóla en að láta fara vel um sig og fjölskylduna og horfa á ekta jólamyndir þar sem hinn eini og sanni jólaandi svífur yfir vötnum. Núna í desember koma út á VOD-leigunum níu nýjar jólamyndir sem kynntar eru hér í blaðinu og er Holiday Road Trip sú fyrsta. Þetta er ljúf, fyndin og rómantísk mynd um mann og konu sem hafa reynt ýmislegt í lífinu og hefðu ekki getað látið sér til hugar koma að þau myndu falla hvort fyrir öðru. En ævintýrin gerast enn ... Punktar ............................................................................................ Takið eftir Shelley Long í hlutverki móður Mayu, Cynthiu, en Shelley er best þekkt fyrir að leika Diönu Chambers í Staupasteins-gamanþáttunum (Cheers). l VOD 84 mín Aðalhlutverk: Ashley Scott, Patrick Muldoon og Kip Pardue Leikstj.: James Marquand Útgefandi: Sena Jólamynd 1. desember Þrátt fyrir upphaflegt ósætti eiga þau Maya og Patrick eftir að ná vel saman. A Christmas in Vermont Veldu það rétta Riley Thomas vinnur hjá fjárfestingarfyrirtæki í eigu hins gíruga Prestons Bullock sem hugsar um fátt annað en gróða. Þegar Preston sendir Riley til lítils bæjar til að leysa upp lítið fyrirtæki lendir hún á milli steins og sleggju. A Christmas in Vermont gerist í smábænum Chestnut, en þangað er Riley send til að loka fataframleiðslu og verslun sem Preston vill losna við. Hún villir í fyrstu á sér heimildir gagnvart forstjóra fyrirtækisins, Wyatt, en þegar hún áttar sig á því hversu mikilvægt fyrirtækið er fyrir hann, starfsfólkið og íbúa bæjarins fara að renna á hana tvær grímur. Þær efasemdir leiða til þess að hún hættir við áætlun sína, en hvernig í ósköpunum á hún að fá yfirmann sinn til að samþykkja það? Punktar ............................................................................................ Fyrir utan gamla góða Chevy Chase leikur Morgan Fairchild stórt hlutverk í myndinni, en hún gerði m.a. garðinn frægan í Falcon Crest-sjónvarpsþáttunum. l VOD 85 mín Aðalhlutverk: Abigail Hawk, Chevy Chase og David O’Donnell Leikstjórn: Fred Olen Ray Útgefandi: Sena Jólamynd 20 Myndir mánaðarins 1. desember Wyatt grunar ekki í fyrstu að Riley sé í raun ætlað að leysa upp fyrirtæki hans.