Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 10

Myndasyrpa 10 Á meðan við hér á Íslandi þurftum að þola fyrstu meiriháttar snjókomu vetrarins og tilheyrandi vetrarkulda spókaði Olivia Wilde sig á brimbrettinu á Hawaii 23. nóvember. Á sama tíma var Anna Kendrick hins vegar í Vancouver í Kanada að taka upp skautaatriði í myndinni Noelle eftir Marc Lawrence, en í henni leikur Anna dóttur jólasveinsins. Bræðurnir James og Dave Franco voru hinir hressustu þegar þeir sóttu forsýningu myndar sinnar The Disaster Artist í London 22. nóvem- ber, en hún hefur hlotið frábærar viðtökur. New York-búinn Reese Witherspoon var aldrei þessu vant stödd í Beverly Hills 22. nóvember, e.t.v. til að ganga frá samningsatriðum í tengsl- um við myndir sínar Tinkerbell og Wish List. Lily Collins og Robert Pattinson stilltu sér upp saman í Santa Monica 21. nóvember þar sem þau sóttu ásamt mörgum frægum uppboð á vegum Go Campaign-góðgerðarsamtakanna. Jessica Alba sótti hins vegar viðburð á vegum barnavörufyrirtækisins The Honest Company í Los Angeles 18. nóvember, en hún á eins og sést von á sínu þriðja barni innan tíðar. Myndir mánaðarins