Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 32

The Disaster Artist
Svo vond að hún varð góð
Kvikmyndin The Room sem Tommy Wiseau stóð að og lék aðalhlutverkið í árið 2003 varð fljótlega eftir frumsýningu fræg fyrir að vera svo slæm og illa leikin að hún fór allan hringinn og er nú af mörgum talin ein fyndnasta mynd allra tíma – þótt Tommy hefði síður en svo ætlað sér að gera gamanmynd .
The Disaster Artist er um gerð þessarar myndar og er leikstýrt af James Franco sem jafnframt leikur Tommy Wiseau og þykir gera það af stakri snilld , en Tommy var og er afar sérstakur maður á allan hátt , bæði í orði og æði , svo ekki sé sterkar til orða tekið . Handritið er eftir félagana Scott Neustadter og Michael H . Weber ( 500 Days of Summer , The Spectacular Now , The Fault in our Stars , Paper Towns ) og er byggt á bókinni The Disaster Artist : My Life Inside The Room , the Greatest Bad Movie Ever Made eftir Greg Sestero sem var ( og er sennilega enn ) einn besti og nánasti vinur Tommys Wiseau og lék stórt hlutverk í mynd hans , hlutverk Marks ( Oh , hi Mark ).
The Disaster Artist kemur í kvikmyndahús 29 . desember og eru þeir sem vilja sjá góðar bíómyndir sem líða þeim seint úr minni eindregið hvattir til að láta hana alls ekki fram hjá sér fara .
The Disaster Artist Sannsögulegt
Aðalhlutverk : James Franco , Dave Franco , Seth Rogen , Alison Brie , Josh Hutcherson , Zac Efron , Sharon Stone , Megan Mullally og Zoey Deutch Leikstjórn : James Franco Bíó : Sambíóin Álfabakka , Kringlunni og Akureyri , og Bíó Paradís
92 mín
James Franco leikstýrir myndinni og leikur aðalhlutverkið , hinn sérstaka Tommy Wiseau , sem er hér að leika í einu frægasta atriði myndarinnar The Room . Ef þið hafið ekki séð þetta atriði þá hvetjum við ykkur til að sjá það á YouTube , en atriðið er svo fáránlegt og illa leikið að það verður að einu fyndnasta atriði kvikmyndasögunnar .
Frumsýnd 29 . desember Punktar ....................................................
l Fjölmargir kunnir leikarar koma fram sem þeir sjálfir í The Disaster Artist , þar á meðal þau Kristen Bell , Lizzy Caplan , Bryan Cranston , Adam Scott , Kate Upton , Zach Braff og Bob Odenkirk ásamt leikstjórunum J . J . Abrams og Judd Apatow . Rúsínurnar í pylsuendanum eru svo Tommy Wiseau sjálfur , sem leikur karakter að nafni Henry , og Greg Sestero sem leikur ónefndan ráðningastjóra .
l The Disaster Artist hefur verið sýnd á ýmsum kvikmyndahátíðum í haust og fengið afar góða dóma bæði almennra hátíðargesta og gagnrýnenda . Það kæmi svo ekki á óvart að hún myndi hljóta mörg verðlaun þegar árið verður gert upp um og eftir áramótin .
Frá upptökum á The Room , en þarna eru m . a . Seth Rogen í hlutverki handritsráðgjafans Sandys og Dave Franco í hlutverki Gregs Sestero .
Veistu svarið ? James Franco hefur um árabil haft það orð á sér að vera vinnufíkill enda er hann alltaf með fjölmörg verkefni í gangi , bæði sem leikari , leikstjóri og handritshöfundur . En í hvaða frægu sjónvarpsþáttum sló hann upphaflega í gegn árið 1999 ?
Bræðurnir James og David Franco ásamt mönnunum sem þeir leika í myndinni , Tommy Wiseau og Greg Sestero .
32 Myndir mánaðarins
Freaks and Geeks .