Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 Bíó | Page 23

Bangsi og dóttir nornarinnar Sterkasti björn í heimi Sögurnar um Bangsa, sterkasta björn í heimi, eru eftir sænska rithöfundinn og teiknarann Rune Andréasson og hafa notið mikilla vinsælda barna um árabil, bæði sem teiknimyndablöð og sem sjónvarpsþættir allt frá 1973. Bangsi og dóttir nornar- innar er önnur bíómyndin sem gerð er um ævintýri hans og er hún fyrst og fremst ætluð yngsta aldurshóp áhorfenda. Bangsi er svona sterkur vegna þess að hann borðar stundum þrumuhunang sem amma hans útbýr handa honum. Það kemur sér vel þegar hann lendir í glímu við hinn gráðuga Krösus Sork sem í þetta sinn hefur komist á snoðir um gull undir stíflu nokkurri og til að klófesta það þarf hann að sprengja stífluna með vondum afleiðingum fyrir hin dýrin í skóginum. Bangsi er sá eini sem getur stöðvað hann og því bregður Krösus á það ráð að fá dóttur nornar nokkurrar í lið með sér til að plata Bangsa í burtu á meðan hann nær í gullið. Þessa áætlun verður að stöðva og spurningin er hvort Bangsi átti sig í tæka tíð á blekkingunni sem hann er beittur ... Bangsi og dóttir nornarinnar Teiknimynd 65 mín Íslensk talsetning: Rúnar Freyr Gíslason, Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir, Örn Árnason, Laddi, Steinn Ármann Magnússon, Viktor Már Bjarnason, Íris Tanja Flygenring, Albert Halldórsson, Hálfdán Matthíasson o.fl. Leikstjórn: Tómas Freyr Hjaltason Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 8. desember Myndir mánaðarins 23