Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 26

Önd, önd, gæs Engin venjuleg fjölskylda Önd, önd, gæs er glæný teiknimynd um unglingsgæsina Peng sem heldur að hann sé snjallasta gæsin í gæsahópnum og þurfi ekkert að æfa sig fyrir haustferðina suður á bóginn. Þetta viðhorf á eftir að koma honum í koll ... en þó með þeim óvæntu afleiðingum að hann eignast tvo fósturunga! Það skemmtilegasta sem Peng gerir er að fljúga um loftin blá á miklum hraða og taka alls konar áhættu. Hann á hins vegar erfitt með að fylgja reglum og halda aga og er af þeim sökum t.d. óhæfur til að fara fremstur í oddafluginu sem gæsir nota til að komast lengra og fljúga léttara þegar