Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 25

7 Days in Entebbe Ein magnaðasta hernaðaraðgerð allra tíma Þann 27. júní 1976 var farþegaþotu Air France á leið frá Tel Aviv til Parísar rænt með 248 farþegum innanborðs og skipuðu flugræningjarnir flugstjóranum að fljúga vélinni til Entebbe- flugvallar í Úganda. Það sem gerðist svo er lyginni líkast! Það má með sanni segja að allur heimurinn hafi fylgst með atburða- rásinni sem í gang fór eftir að vélin var lent á Entebbe-flugvellinum í Úganda. Fljótlega varð ljóst að Idi Amin, hershöfðingi og forseti Úganda, studdi flugræningjana, en hann var alræmdur harðstjóri sem hafði lengi eldað grátt silfur við bæði nágrannaríki sín og vest- ræn ríki. Margir urðu því afar fegnir þegar flugræningjarnir slepptu mörgum af gíslum sínum en á móti kom að þeir héldu eftir öllum sem báru ísraelskt vegabréf. Hótuðu þeir að taka þá af lífi einn af öðrum ef ísraelska stjórnin léti ekki lausa úr haldi 40 palestínska fanga og að 13 öðrum sem voru í fangelsi í öðrum löndum yrði líka sleppt. Ljóst var að ekki yrði gengið að kröfum þeirra enda var það yfirlýst stefna Ísraelsstjórnar að semja aldrei við ræningja. Í hönd fóru nokkrir spennandi dagar sem fengu allan heiminn til að standa á öndinni. Þann tíma notaði leyniþjónusta Ísraels til að skipu- leggja djarfa björgunaraðgerð sem allar götur síðan hefur verið talin eitt magnaðasta björgunar- og hernaðarafrek sögunnar ... 7 Days in Entebbe Sannsögulegt 107 mín Aðalhlutverk: Rosamund Pike, Daniel Brühl, Eddie Marsan, Nonso Anozie, Ben Schnetzer, Mark Ivanir, Peter Sullivan og Natalie Stone Leikstjórn: José Padilha Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll, Kringl- unni, Akureyri og Keflavík ásamt Ísafjarðarbíó, Eyjabíó, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó Frumsýnd 18. apríl Þau Daniel Brühl og Rosamund Pike leika leiðtoga flugræningjanna, Wilfried Böse og Brigittu Kuhlmann, en þau voru par og einhverjir eftirlýstustu aðgerðasinnar í Evrópu á áttunda áratug síðustu aldar. Punktar .................................................... Myndin er byggð á bókinni Operation Thunderbolt: Flight 139 and the Raid on Entebbe Airport, the Most Audacious Hostage Rescue Mission in History eftir Saul David en í henni voru birtar áður leyni- legar upplýsingar um „Operation Thunderbolt“ eins og aðgerðin nefndist, hverjir stóðu að baki henni og hvernig hún var skipulögð. l Flugvél Air France stóð á Entebbe-flugvellinum í sjö daga á meðan allur heimurinn stóð á öndinni yfir því hvað myndi gerast því ljóst var að hvorki Ísraelar né aðrir myndu ganga að kröfum flugræningjanna. Veistu svarið? Spænsk-þýski leikarinn Daniel Brühl tekur gjarnan að sér hlutverk í sannsögulegum myndum, en hann er jafnvígur á þýsku, spænsku, frönsku, portúgölsku og ensku. Í hvaða sannsögulegu mynd sem kom út á síðasta ári lék hann þýska liðsforingjann Lutz Heck? Sá sem fór fyrir björgunarsveit Ísraela var Yonatan Netanyahu og var hann jafnframt sá eini af ísraelsku hermönnunum sem lét lífið í aðgerðinni. Yonatan var eldri bróðir Benjamins Netanyahu. The Zookeeper’s Wife. Myndir mánaðarins 25