Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 20

The Death of Stalin Satíra / Svartur húmor
The Death of Stalin
Baráttan um völdin
Einn alræmdasti harðstjóri sögunnar , Jósef Stalín , lést 5 . mars árið 1953 eftir að hafa fengið heilablóðfall fjórum dögum fyrr . Þar sem hann hafði ekki skilið eftir nein fyrirmæli um arftaka sinn hófst þá þegar alveg makalaust valdatafl hæst settu mannanna í stjórn hans í Kreml sem hér er gert stólpagrín að .
Þessi nýjasta mynd skoska leikstjórans margverðlaunaða , Armandos Iannucci ( In the Loop ), hefur eins og fyrri verk hans og ádeilur hlotið frábæra dóma og ætti ekki að fara fram hjá neinum kvikmyndaunnendum sem kunna að meta gott grín og svartan húmor . Fjölmargir frábærir leikarar bregða sér hér í hlutverk nokkurra helstu ráðamanna Sovétríkjanna sem tókust á um völdin eftir dauða Stalíns árið 1953 og er óhætt að segja að þeir fari allir sem einn á kostum .
20 Myndir mánaðarins

The Death of Stalin Satíra / Svartur húmor

Aðalhlutverk : Steve Buscemi , Simon Russell Beale , Rupert Friend , Jason Isaacs , Michael Palin , Andrea Riseborough , Jeffrey Tambor , Olga Kurylenko og Paddy Considine Leikstjórn : Armando Iannucci Bíó : Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri
132 mín
Frumsýnd 6 . apríl
Jeffrey Tambor leikur Georgy Malenkov sem tók við völdunum eftir dauða Stalíns en átti ekki eftir að halda þeim lengi .
Veistu svarið ? Michael Palin , sem leikur Molotov í The Death of Stalin , er ekki óvanur því að leika í bönnuðum myndum síðan Life of Brian framkallaði hneykslun margra trúaðra árið 1979 . Í hvaða tveimur Evrópulöndum var sú mynd upphaflega og alfarið bönnuð ?
Írlandi og Noregi .
Valdataflið hófst strax þegar ljóst varð að Stalín var búinn að vera og einkenndist að miklu leyti af því að hver og einn sem starfaði í Kreml á þessum tíma gat átt von á því að vera tekinn af lífi án fyrirvara . Á myndinni má sjá þá Steve Buscemi , Jeffrey Tambor , Paul Whitehouse og Simon Russell Beale sem leika þá Krúsjeff , Malenkov , Mikoyan og Beria og það er Adrian McLoughlin sem leikur hinn fallna leiðtoga .
Punktar ....................................................
HHHHH - Empire HHHHH - L . A . Times HHHHH - N . Y . Times HHHHH - Total Film HHHHH - Guardian HHHHH - Time Out HHHH1 / 2 - Chicago Sun-Times HHHH1 / 2 - RogerEbert . com HHHH1 / 2 - Rolling Stone HHHH - H . Reporter HHHH - Screen
l The Death of Stalin hefur hlotið toppdóma eins og sést á stjörnugjöfinni hér fyrir ofan og er með 8,5 í meðaleinkunn fjörutíu gagnrýnenda á Metacritic . com og 9,5 á RottenTomatoes . com .
l Flest það sem gerist í myndinni er byggt á raunverulegum atburðum þótt þeir hafi kannski ekki gerst með þeim hætti eða við þær aðstæður sem myndin lýsir . Þannig er t . d . kossinn sem Molotov rekur Krúsjeff tilvísun í kossinn fræga sem Brésneff rak Erich Honecker í heimsókn þess fyrrnefnda til Austur-Berlínar árið 1979 . Fleiri slík atriði er að finna í myndinni , þ . e . tilvísanir í atburði sem gerðust fyrir utan tímaramma myndarinnar sjálfrar , en fá að fljóta með til að gefa áhorfendum meiri tilfinningu fyrir andrúmsloftinu sem var ríkjandi í Sovétríkjunum bæði fyrir og eftir dauða Stalíns .
l The Death of Stalin er að hluta til byggð á frönsku teiknimyndasögunni La mort de Staline eftir þá Fabien Nury og Thierry Robin .
l Menningarmálaráðuneyti Rússlands bannaði þessa mynd 23 . janúar síðastliðinn á þeim grunni að hún vanvirti rússneska sögu , þjóðsönginn , fánann og heiðursverðlaun ríkisins auk þess að vera móðgandi við þá sem börðust fyrir Sovétríkin í síðari heimsstyrjöldinni .