2.tbl. 44.árg. júní 2016 | Page 50

Stigahæsti vinnuhundur ársins

Á hverju ári heiðrar vinnuhundadeild HRFÍ stigahæsta vinnuhund ársins . Árið 2015 varð OBI OBII Vonziu ‘ s Asynja stigahæsti vinnuhundur deildarinnar aðeins 2 ára að aldri . Ynja er í eigu Hildar S . Pálsdóttur sem hefur séð um þjálfun hennar .
OBI OBII Vonziu ‘ s Asynja
Höfundur : Klara Símonardóttir
Hvaðan kemur hundurinn , frá hvaða landi og úr hvaða ræktun ? Hún kemur frá Wales í Bretlandi er úr ræktun sem heitir Vonziu ( German Shepherds )
Valdir þú hvolpinn ? Nei ég valdi ekki hvolpinn , ræktandinn gerði það fyrir mig , hann valdi hvolpinn sem hann taldi best henta í það sem ég hefði ætlað mér að gera með hann .
Hvernig gekk að sannfæra ræktandann um að senda hvolpinn hingað ? Það gékk bara mjög vel , honum fannst það bara mjög spennandi að senda hund til Íslands . Ræktandanum fannst það lítið mál , enda búin að senda hunda út um allann heim , en ég dauð vorkenndi honum á tímabili af því að þetta var orðið svo mikið vesen ( að mér fannst ) með alla pappírana og dýralækna heimsóknirnar en hann kvartaði aldrei , allavegna ekki svo ég heyrði til .
Sástu gæðin strax eða komu þau fram síðar ? Það kom mjög fljótt í ljós og hefur alltaf verið voða gaman og auðvellt að þjálfa hana , t . d . þegar ég fékk hana úr einangruninni þá var hann Jón ( sem á og rekur stöðina ) búinn að kenna henni að sitja , heilsa og kyssa .
Hvað var það sem með fyrstu einkunn og silfurmerkið . Í heillaði við hvolpinn ? mars tekur hún C-próf í snjóflóðaleit Hún er alveg hrikalega skemmtileg , hjá BHSÍ . Fer síðan aftur í apríl og geðgóð og elskar að vera í kringum maí í Hlýðni 1 próf og fær í bæði börn og aðra hunda . skiptin fyrstu einkunn og fékk þá
Hvernig er rútínan hjá OBI titilinn . Síðan 27 ágúst fer hún í ykkur í vinnu / hreyfingu ? fyrsta Hlýðni 2 prófið og fær 170,5
Ég tek eina æfingu í hlýðni á viku sirka , stig með fyrstu einkunn , síðan aftur síðan ef að ég er að stefna á eitthvað 18 sept . og fær þá fyrsta gullmerkið sérstakt eins og próf þá æfi ég oftar . og 10 okt . fer ég aftur með hana og Síðan fer ég með hana út að labba á fær hún 3 fyrstu einkunnina og fær hverjum degi , og á sumrin tek ég hana OBII titilinn . Í september fékk hún
út að hjóla / línuskauta og að synda . líka C-próf í víðavangsleit hjá BHSÍ og síðan í nóvember fór ég með hana í
Hefur þú notað hana í ræktun ? spora próf og fékk hún 90 stig af 100
Nei hún hefur ekki verið pöruð ennþá . mögulegum .
Hefur hundinum gengið vel áður í vinnuprófum ? Henni hefur yfirleitt alltaf gengið vel í vinnu . Það hefur verið mjög auðvelt að þjálfa hana , ég fór með hana í Bronsprófið í hlýðni í nóvember 2014 þá var hún 11 mánaða gömul og fékk hún þá 173 stig af 180 mögulegum stigum , síðan í 27 febrúar 2015 fór hún í fyrsta Hlýðni 1 prófið sitt og fékk 184,5 stig af 200 mögulegum
Hafa foreldrar hundsins skilað góðum árangri í vinnu ? Foreldrarnir eru ekki í neinni vinnu , en systkinin hennar , afar og ömmur hafa staðið sig vel .
Hver finnst þér stærsti kosturinn hennar ? Hún vælir ekki eins og Schafer hundar eru þekktir fyrir að gera .

Góður árangur á veiðiprófum

Í þessu blaði höfum við farið yfir stigahæstu hunda félagsins í hinum ýmsu þáttum félagsins . Ekki er samræmd stigagjöf fyrir veiðipróf hunda úr tegundahópi 7 en höfundi fannst ótækt að sleppa þeim hópi þar sem mikil virkni er í veiðiprófum deildanna í tegundahópnum . Við fengum ábendingu um að Þorsteinn Friðriksson hefði náð góðum árangri á árinu með ensk setter tíkina sína Rjúpnasels Þrumu sem varð þriggja ára í maí og fengum að leggja fyrir hann nokkrar spurningar um Þrumu .
Rjúpnasels Þruma
Höfundur : Klara Símonardóttir
Hvaðan kemur hundurinn , úr hvaða ræktun ? Þruma kemur úr minni ræktun þ . e . a . s . Rjúpnaselsræktun er ein af níu hvolpum úr þessu goti . Átta eru á lífi og sjö eru þjálfuð og notuð við veiðar .
Fimm hafa tekið þátt í veiðiprófum , þrír fengið einkunn í unghundaflokki , Þruma fengið aðra einkunn í opnum flokki , eins og tvö systkini hennar þau Funi ( tvisvar ) og Rán . Fjögur hafa verið sýnd með góðum árangri og Rjúpnasesl Skrugga komin með alþjóðlegan sýningartitil .
Valdir þú hvolpinn / hundinn ? Þruma var lang minnst af hvolpunum og voru það barnabörnin sem völdu hana :)
Ef þú ræktaðir hundinn sjálf / ur , hvaða kynslóð er hann úr þinni ræktun og hafðiru hugmynd um að þú gætir fengið svona gott eintak ? Þruma er úr fyrsta og eina gotinu hjá mér . Langamma hennar NUCh Vigda ´ tta ‘ s Vega var norðurlandameistari svo það máti vona að það kæmu góðir veiðihundar úr gotinu .
Sástu gæðin strax eða komu þau fram síðar ? Eiginleikar þrumu komu fram smátt og smátt eftir því sem hún þroskaðist .
Hvernig er rútínan hjá ykkur í veiði / hreyfingu ? Þruma og hinir ensku setarnir sem ég er með C . I . B ISCh Elding og Rjúpnasels Funi eru hreyfð 3 til 4 sinnum í viku allt árið . Veitt er alla helgar á rjúpnaveiðitímabilinu .
Hefur þú notað hana til ræktunar ? Hún hefur ekki verið notuð til ræktunar .
Hafa foreldrar hundsins skilað góðum árangri í veiði ? C . I . B ISCh Elding móðir hennar og Rjúpnadals Seifur faðir hennar eru bæði með 1 . einkunn á veiðiprófum .
Hver finnst þér stærsti kosturinn við Þrumu ? Hún hefur gott nef og er kvik .
50 · Sámur 2 . tbl . 44 . árg . júní 2016