2.tbl. 44.árg. júní 2016 | Page 26

búast . Mér þykir mikilvægt að þekkja mína hunda vel og rekja aftur ættir þeirra , kostina og gallana , horfa vel á það sem er til staðar og gera mitt besta .
Hvernig velur þú hvolp til áframhaldandi ræktunar ?
Ég fylgist vel með þeim allt frá fæðingu . Ég fæ tilfinningu fyrir hvolpunum nýfæddum og svo við 6 – 8 vikna aldurinn . Á ákveðnum aldri vel ég svo hvolp sem er álitlegur í byggingu en jafnframt með gott skap , helst með smá attitude . Ég hef haldið tveimur , jafnvel þremur eftir úr goti , og sett á fóðurheimili og hef metið þá seinna á lífsleiðinni þegar þeir eru orðnir fullþroska . Það auðveldar mér að velja seinna þann hund sem að mig langar til að vinna áfram með . Ég hef haldið eftir hundum sem hafa ekki endilega verið notaðir til ræktunar .
Hefur þú lent í einhverjum leiðinlegum atburðum með got ? Ef svo er , hvernig tókstu á við það ?
Ég hef misst hvolpa nokkurra daga gamla , nokkurra vikna , fengið holgóma hvolpa og lent í keisara með tík . Það tók ótrúlega mikið á taugarnar því þetta er átakanlegt og erfitt að þurfa að horfa upp á litla hvolpa deyja eða kveljast . Ég skil hvern þann sem hugsar sig tvisvar um að halda áfram í ræktun eftir áföll af þessum toga , en maður heldur áfram og horfir fram á veginn , vonar það besta og gleðst yfir því sem fer vel .
Áttu einhver góð ráð til annarra ræktenda ?
Samstarf skiptir öllu máli , að vinna saman og njóta góðs af því sem aðrir eru að gera og leyfa öðrum að njóta góðs af því sem að maður er að gera sjálfur . Þetta er of lítið land til þess að einangrast með sína ræktun , við höfum ekki efni á því stofnsins vegna . Við eigum að horfa saman á tegundina vaxa og dafna og leggja öll okkar af mörkum . Mér finnst mikilvægt að ræktendur tali saman , skiptist á skoðunum og séu hver öðrum innan handar . Það gerir starfið svo miklu skemmtilegra . Við getum alltaf lært af öðrum , sama hvort viðkomandi hafi verið lengi eða stutt í ræktun .
Svartwalds I Love It Loud „ Loki “
Ertu ánægð með þróun ræktunar á þinni tegund eða finnst þér að ræktendur mættu huga betur að einhverjum atriðum varðandi hana ?
Ég er virkilega stolt af okkur öllum , við erum flest að hugsa vel um það sem við erum að gera og allir hafa sett sitt mark á tegundina á góðan hátt . Við höfum fengið hrós erlendis frá og erum ofarlega í gæðum hvað varðar ræktun á dvergschnauzer í Evrópu , ég tek kannski svolítið stórt upp í mig en ég er einfaldlega svo stolt af okkur Íslendingum .
Áttu einhverjar óuppfylltar óskir um framtíð ræktunar þinnar eða tegundarinnar í heild ?
Minn draumur er að geta ferðast með hundana á sýningar erlendis , við erum með virkilega vandaða og fallega einstaklinga sem eru hvergi sjáanlegir erlendis . En því miður erum við einangruð á þessari eyju vegna einangrunarstefnu stjórnvalda . Því sjást sárasjaldan hundar frá okkur á sýningum erlendis en ég vil að við komum Íslandi á kortið því við erum með gríðalega flott ræktunarstarf sem að vert er að sýna .
Er eitthvað sem þú myndir vilja hafa gert öðruvísi þegar þú lítur til baka ? Hefur þú á einhvern hátt breyst frá því þú byrjaðir að rækta hunda ?
Nei , ég vil ekki hafa gert neitt öðruvísi . Ég horfi bara fram á við en ekki tilbaka , til hvers ? Við lærum ekki ef við gerum ekki mistök ! Ég held að við breytumst öll ef við erum nógu lengi ræktendur , maður þroskast , lærir og sér að ekkert er sjálfgefið . Gleði einn dag , sorg hinn . Maður herðist og á auðveldara með að takast á við áföll .
Hvernig hefur þér tekist að samræma hundahaldið daglegu lífi í þéttbýlinu ?
Þetta er ljúft , við erum á góðum stað í Smáíbúðarhverfinu og ekki með nálæga göngustíga , sem hentar ofsalega vel svona varðhundategund . Hundahald hefur aukist og með því hefur skilningur vaxið .
Finnst þér ríkja í þéttbýlinu skilningur og umburðarlyndi gagnvart þeim sem eiga nokkra hunda og þeim sem rækta hunda ?
Það var það ekki áður og fólki þótti þetta óttarlega subbulegt eða “ sveitó ”. En við erum mörg sammála um að hundarækt hefur breyst og nýtur nú meiri virðingar en áður fyrr . Margir eiga fleiri en einn hund í dag þrátt fyrir að vera ekki ræktendur þannig að hugafarsbreyting hefur átt sér stað . Hundar eiga sem sagt erindi í borgina og eiga ekki “ allir ” að búa í sveit !
Að lokum , hvernig myndir þú vilja að fólk minntist þín sem hundaræktanda ?
Að ég hafi ræktað heilbrigða , skapgóða og fallega hunda . Lagt mitt að mörkum fyrir tegundina og skilið eftir mig góða einstaklinga .
26 · Sámur 2 . tbl . 44 . árg . júní 2016