Sokkur með tropi hjálpaði þessum
sundhvolpi á Íslandi en sokkurinn hindraði
hvolpinn í að liggja á maganum. Mynd:
Anja Björg
Hvolparnir verða síðan smám saman
meira meðvitaðir um hvar þeir eiga að
losa sig. Í byrjun losa þeir sig á þeim
stað þar sem þeir eru staddir á hverjum
tíma. Þegar þeir eru um 18 daga
gamlir, fara þeir að sækja út í hornið á
hvolpakassanum til þess að losa sig –
einn á einum stað og annar á allt öðrum
stað. Í kring um 3 vikna aldurinn verða
þeir meira sammála um hvað megi
kalla klósett – þeir munu í meira mæli
losa sig allir á sama stað. Ef við gerum
ráð fyrir því að úrgangurinn sé stöðugt
fjarlægður, annað hvort af okkur eða
tíkinni, verða hvolparnir sjaldan útataðir
saur. Þeir hafa engan veginn lyst á að
sofa þar sem þeir hafa losað sig!
í framfæturna þannig að hann heldur
uppi fremri hluta líkamans. Eftir nokkra
daga eru afturfæturnir orðnir nógu
styrkir til þess að halda uppi öllum
líkamanum. Samhæfing hreyfinganna er
ekkert sérstaklega vel lukkuð til að byrja
með, en æfingin skapar meistarann.
Það er heillandi að fylgjast með
hvolpunum á þessum tímapunkti. Þeir
berjast við að koma sér á fætur, ganga
nokkur skref, missa jafnvægið, detta
og prófa aftur. Fáum dögum eftir fyrstu
fálmandi tilraunirnar ganga þeir ansi vel,
en eru áfram frekar óstöðugir.
Það er mikilvægt að undirlagið sé
gott þegar hvolparnir byrja að ganga.
Dagblöð verða auðveldlega hál.
Gæludýrateppi henda frábærlega í
hvolpakassanum. Sé sett undirlag af
dagblöðum draga þau vel í sig allan raka
og gefa góða festu fyrir fæturna þegar
hvolpurinn byrjar að standa upp þannig
að þeir renna ekki. Sumir hvolpar
geta þegar staðið og ganga sæmilega
stöðugir viku gamlir, en flestir þurfa eina
viku í viðbót til þess að ná sömu færni.
Þeir sem eru vel fóðraðir geta verið
enn tregari. Nokkrir af þeim ná ekki
að standa á fætur af sjálfsdáðum og
þurfa hjálp. Þessir hvolpar eru kallaðir
sundhvolpar og verða að fá aðstoð við
að komast á fætur (fætir lagðir í réttar
stellingar). Hægt er að lesa um þetta í
Genetikk, Avl og Opdrett (NKK 1999)
eða Obstetrikk hos hund og katt (Tell
forlag 1997).
Sjón og heyrn
Augnlokin eru algjörlega samvaxin
þegar hvolpurinn fæðist. Í kringum 10
daga aldur fara þau lokst að losna frá
hvert öðru. Þetta getur þó verið mjög
breytilegt. Ég hef sjálf upplifað að
hvolpur opnaði augun 5 daga gamall,
án þess að það væri óeðlilegt í þeim
skilningi átti hann í vandamálum með
sjónina síðar.
Hvolpurinn kemst á fætur
Hreyfifærnin þroskast hratt og er hægt
að fylgjast með framförunum með því
að skoða hvernig hvolpurinn hagar
sér. Fyrstu dagana liggja hvolparnir
á maganum og nota hreyfingar með
fótunum til hliðar við líkamann þegar
þeir eru að koma sér áfram. Þeir krafla
sig áfram og færa sig aðeins stuttar
vegalengdir, með það að markmiði
að finna spena með mikilli mjólk eða
hlýjan stað til að liggja á (til dæmis
í handarkrika eða milli afturfóta
mömmu).
Framþróunin heldur áfram í stökkum.
Þriggja daga gamlir verða hvolparnir
meira virkir og byrja að krafla sig
lengra í burtu. Stöðugt stærra svæði í
hvolpakassanum eða hvolpaherberginu
verður að þekja með hlýjum teppum.
Þegar hvolpurinn er í kring um viku
gamall (5-8 daga) byrjar hann að standa
12 · Sámur 2. tbl. 44. árg. júní 2016
Mynd: Þorsteinn Th.